Áfangaheiti

Heiti áfanga í námskrá

Allir áfangar í námskrá gefa til kynna heiti námsgreinar, hæfniþrep og einingafjölda samkvæmt nýju einingakerfi. 

Dæmi:  

ÍSLE2MB05:  ÍSLE(íslenska) 2 (á öðru hæfniþrepi) MB (málnotkun og bókmenntir)05 (fjöldi eininga ).

ÍSLE3BF05: ÍSLE(íslenska) 3 (á þriðja hæfniþrepi- undanfari eru tveir áfangar á öðru þrepi) BF (bókmenntir fyrri alda) 05 (fjöldi eininga).

Kröfur um hæfniþrep. 

Öllu námi í skólanum er skipt upp í þrjú hæfniþrep þar sem hærri þrepin byggja á þeim lægri. Þrepin þrjú teljast til framhaldsskólastigs. Til þess að ljúka stúdentsprófi má nám á fyrsta þrepi ekki vera meira en 1/3 af heildareiningum og nám á þriðja þrepi þarf að vera að lágmarki 1/6 af heildareiningum.