Bett ráðstefna

Nokkrir kennarar og starfsfólk skólans eru farin á Bett ráðstefnu sem er í London frá 23. -26. janúar

Á Bett má kynnast nýjungum í skólastarfi, kynnast vörum og kennsluefni í glæsilegum sýningarbásum og sækja fróðlega fyrirlestra. Sýningin er afar áhugaverð þeim sem gefa sig að tölvum og tækni innan skólaveggjanna. Markmið okkar er að koma saman fólki, hugmyndum, venjum og tækni þannig að kennarar og nemendur geti fullnýtt möguleika sína.

 London