Gengið í kringum Kirkjufell

Nemendur í íþróttum og útivist hjá Maríu Kúld og nemendur í jarðfræði hjá Árna Ásgeirs fóru í þessa gönguferð sem verkefni í þeim áföngum. Nemendur í jarðfræðinni höfðu undirbúið mjög áhugaverða punkta um svæðið og með nokkuð reglulegu millibili stoppuðum við og hlýddum á þau segja okkur alls konar fróðleik um t.d. Kirkjufellið. Veðrið lék við okkur og ekki annað hægt að segja en að ferðin hafi heppnast fullkomlega.Ganga