Hagfræðilína við FSN

Í Fjölbrautaskóla Snæfellinga verður boðið upp á hagfræðilínu á öllum stúdentsprófsbrautum frá haustönn 2019. Nemandi sem útskrifast af stúdentsprófsbraut með hagfræðilínu skal taka kjarna og viðbótarkjarna viðkomandi stúdentsprófsbrautar auk hagfræðilínunnar. Verið er að ljúka við vinnu við brautina.