Eyja- og Miklaholtshreppur gáfu skemmtilega afmælisgjöf

Eyja- og Miklaholtshreppur gaf nemendum borðtennisborð, spaða og kúlur í tilefni 20 ára afmælis skól…
Eyja- og Miklaholtshreppur gaf nemendum borðtennisborð, spaða og kúlur í tilefni 20 ára afmælis skólans.

Eins og kunnugt er þá átti skólinn 20 ára afmæli í haust. Í tilefni af því fengum við skemmtilega gjöf frá Eyja- og Miklaholtshrepp en þau færðu okkur borðtennsborð, spaða og tenniskúlur. Gjöfin hefur vakið ómælda gleði hjá bæði nemendum og starfsfólki því gamla borðtennisborðið okkar var að verða dálítið lélegt enda mikið notað.

Borðtennisborð í afmælisgjöf