Leiðbeiningar um sóttvarnir í skólastarfi haustið 2021

Leiðbeiningar um sóttvarnir í skólastarfi haustið 2021

Núgildandi reglugerð heilbrigðisráðherra nr. 878/2021 um takmörkun á samkomum gildir til og með 27. ágúst nk. og tekur nú einnig til skólastarfs. Með hliðsjón af henni veitir mennta- og menningarmálaráðuneyti nánari leiðbeiningar til skóla um áhrif gildandi sóttvarnaráðstafana á mismunandi skólastigum.

Markmið sóttvarnaráðstafana í skólum eru sem fyrr að stuðla að öryggi og velferð nemenda, kennara og annars starfsfólks en jafnframt að tryggja, eftir því sem kostur er, kraftmikið og fjölbreytt skólastarf á öllum skólastigum.

Viðbragðsáætlanir vegna smita eru til staðar í öllum skólum. Rekstraraðilar skóla og skólastjórnendur geta gripið til frekari sóttvarnaráðstafana sem mæta aðstæðum á hverjum stað, s.s. frekari hólfaskiptinga í starfsemi og aukinnar grímunotkunar, m.a. til að vernda viðkvæma hópa, draga úr smithættu og auðvelda rakningu, svo fremi sem það bitni ekki á þjónustu við nemendur. Áhersla skal vera á sem eðlilegast skólastarf eins og kostur er á öllum skólastigum.

 

Framhaldsskólar og skólar sem kenna á framhaldsskólastigi:

  • Nemendur og starfsfólk skal bera grímu þar sem ekki er hægt að virða 1 metra nándarreglu.
  • Þó er heimilt að víkja frá grímuskyldu eftir að nemendur eru sestir niður inni í skólastofu.
  • Leyfilegur hámarksfjöldi starfsfólks og nemenda er 200 í rými.
  • Blöndun hópa er heimil, hvort sem um ræðir nemendur eða starfsfólk. Umraða má í hópum milli kennslutíma og lesaðstöðu en mælst er til að sótthreinsað verði milli hópa.
  • Um viðburði á vegum framhaldsskóla eða nemendafélaga þeirra gilda sömu sóttvarnaráðstafanir og 200 manna fjöldatakmörkun fullorðinna.

Háskólar:

  • Nemendur og starfsfólk skal bera grímu þar sem ekki er hægt að virða 1 metra nándarreglu.
  • Þó er heimilt að víkja frá grímuskyldu eftir að nemendur eru sestir niður inni í skólastofu.
  • Leyfilegur hámarksfjöldi starfsfólks og nemenda er 200 í rými.
  • Blöndun hópa er heimil, hvort sem um ræðir nemendur eða starfsfólk. Umraða má í hópum milli kennslutíma og lesaðstöðu en mælst er til að sótthreinsað verði milli hópa.
  • Um viðburði á vegum skóla eða nemendafélaga þeirra gilda sömu sóttvarnaráðstafanir og 200 manna fjöldatakmörkun fullorðinna.

 

Í reglugerð heilbrigðisráðherra er fjallað sérstaklega um þrif og sótthreinsun rýma. Skóla skal þrífa eins og oft og unnt er, sér í lagi algenga snertifleti. Auk þess skal minna á einstaklingsbundnar sóttvarnir, tryggja góða loftræstingu og lofta reglulega út. Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á.

Samantekt um áhrif sóttvarnaráðstafana á skólastarf

Sóttvarnaráðstafanir haust 2021