Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði leitar að matráði til að elda fyrir nemendur og starfsfólk skólans. Mötuneytið er rekið í anda heilsueflandi framhaldsskóla og áhersla lögð á hollan og næringarríkan mat.
Helstu verkefni og ábyrgð
Viðkomandi þarf að geta eldað mat, skammtað mat á matmálstímum og séð um innkaup og þrif á eldhúsi.
Hæfniskröfur
Viðkomandi þarf að geta eldað mat, vera hugmyndaríkur og sjálfstæður í vinnubrögðum, hafa góða færni í mannlegum samskiptum og áhuga á að umgangast ungt fólk.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Ráðning sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags og skv. nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans.
Starfshlutfall er 60%
Umsóknarfrestur er til og með 03.10.2022
Nánari upplýsingar veitir
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, Skólameistari - hrafnhildur@fsn.is - 8650424
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/laus-storf-a-starfatorgi/auglysing/?id=29884