Mötuneyti

Við höfum því miður ekki fengið neinn í stöðu matráðar þannig að mötuneytið verður ekki starfrækt í haust. Við munum bjóða nemendum upp á morgunmat en þeir þurfa síðan að sjá um næringu í hádegismat. Aðstaðan í mötuneytinu mun verða bætt, við munum fjölga tækjum eins og örbylgjuofnum, samlokugrillum og þ.h. og hugsanlega setja upp einhverja sjálfsala.