Nýnemadagar haustið 2021

Nýnemadagar haustið 2021 voru haldnir seinna en venjulega af ástæðum sem óþarfi er að ræða hér. Um leið og létt var á reglum um samkomutakmarkanir vegna covid og framhaldsdeildin okkar var komin í hús stóð stjórn nemendafélagsins fyrir nýnemaviku með tilheyrandi sprelli og gamani. Myndirnar segja meira en mörg orð. Myndirnar tók Tómas Freyr Kristjánsson og þökkum við honum fyrir þessar frábæru myndir.