FSN og LbHí hafa gert með sér samning um kennslu náttúrufræðibrautar með búfræðisviði til stúdentsprófs. Nemendur hafa möguleika á því að útskrifast með stúdentspróf frá FSN og búfræðipróf frá LbHí. Búfræðilínu á stúdentsbraut er ætlað að veita nemendum undirbúning undir háskólanám í náttúru- og búvísindum og tekur að jafnaði fjögur ár. Nemendur taka tvö fyrstu árin í FSN og er megináherslan á kjarnagreinar til stúdentsprófs og valdar greinar á sviði raungreina. Seinni tvö árin taka nemendur við búfræðibraut Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.
Val á nemendum á brautina byggir á því að nemendur hafi reynslu af störfum í landbúnaði og uppfylli önnur þau inntökuskilyrði sem kveðið er á um fyrir búfræðinám í LbhÍ á Hvanneyri. Námið er góður undirbúningur til framhaldsnáms á sviði almennra náttúruvísinda, búvísinda og dýralækninga.