Fréttir

Sushigerð starfsbrautar

Nokkrir nemendur á starfsbraut skólans eru í matreiðsluáfanga á þessari önn. Í dag lærðu þeir að búa til sushi og fannst það mjög gaman. Þeir og starfsmenn deildarinnar gæddu sér svo á afurðunum í lok tímans en að sjálfsögðu fara þeir svo heim með nokkrar sushirúllur.
Lesa meira

Fræðslufundur á vegum forvarnarverkefnisins Eitt líf

Fræðslufundur fyrir fullorðna á vegum forvarnarverkefnisins Eitt líf verður haldinn í Grunnskóla Grundarfjarðar fimmtudaginn 13. febrúar kl. 17:00. Fjallað verður um breyttar áskoranir, stöðuna í dag í vímuefnamálum og hvað við sem samfélag getum gert. Hvetjum alla til að mæta.
Lesa meira