Nýtt foreldraráð hélt sinn fyrsta fund í gær. Hlutverk foreldraráðs er að styðja við skólastarfið, huga að hagsmunamálum nemenda og í samstarfi við skólann efla samstarf foreldra og forráðamanna ólögráða nemenda við skólann. Foreldraráð mun eiga fulltrúa á fundum skólanefndar FSN.
Fulltrúar foreldraráðs 2025-2026 eru:
- Hinrik Konráðsson, formaður,
- Guðmundur Pálsson,
- Dagný Ósk Hermannsdóttir,
- Berglind Eva Ólafsdóttir
- Brynja Mjöll Ólafsdóttir.
Við óskum foreldraráðinu velfarnaðar í sínu starfi.
Úr lögum um framhaldsskóla frá 2008 (nr. 92/2008)
50. gr.
Foreldraráð.
Við hvern framhaldsskóla skal starfa foreldraráð. Skólameistari boðar til stofnfundar þess. Hlutverk foreldraráðs er að styðja við skólastarfið, huga að hagsmunamálum nemenda og í samstarfi við skólann efla samstarf foreldra og forráðamanna ólögráða nemenda við skólann. Félagsmenn geta verið foreldrar nemenda við skólann. Kjósa skal í stjórn ráðsins á aðalfundi þess. Foreldraráð tilnefnir einn áheyrnarfulltrúa í skólanefnd. Foreldraráð setur sér starfsreglur.