Námsmatsdagar 17. og 18. febrúar

Mánudaginn 17. febrúar og þriðjudaginn 18. febrúar verða námsmatsdagar svo það verður ekki kennsla þessa daga.

Nemendur fá svo umsögn í hverjum áfanga miðvikudaginn 19. febrúar og birtist hún í Innu.

Skrifstofan verður lokuð á mánudeginum.